Sérfræðilæknir í lyflækningum krabbameina
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í lyflækningum krabbameina. Starfshlutfall er 50-100% og veitist starfið frá 1. janúar 2026 eða eftir samkomulagi.
Starfið felur m.a. í sér teymisvinnu með öðrum starfsstéttum og sérgreinum spítalans. Leitast er við að hafa meðferð sjúklinga þannig að hver sjúklingur sem vísað er til sérgreinarinnar fái ábyrgan sérfræðilækni.
- Vinna á legu-, dag- og göngudeild ásamt vaktþjónustu við krabbameinslækningadeild
- Vinna við samráðskvaðningar á aðrar deildir Landspítala og þátttaka í samráðsfundum
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samvinnu við yfirlækni
- Þróun á umbótaverkefnum og bættum verkferlum
- Ráðgjöf og þjónusta á sjúkrahúsum á landsbyggðinni er varðar krabbameinssjúklinga
- Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum með krabbameinslækningar sem undirsérgrein eða íslenskt sérfræðileyfi í krabbameinslækningum
- Breið þekking og reynsla í krabbameinslækningum
- Reynsla og þekking í meðferð brjóstakrabbameina er kostur
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 108 Reykjavík