Hjúkrunarnemar á 3. og 4. námsári - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild
Við sækjumst eftir hjúkrunarnemum á þriðja og fjórða námsári til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi á taugalækningadeild í Fossvogi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag (20-100%). Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Störfin laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Taugalækningadeild er 19 rúma bráðalegudeild sem sinnir sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Ótalmörg tækifæri eru fyrir hjúkrunarnema til að vaxa í starfi.
Við bjóðum upp á hvetjandi og lærdómsríkt hlutastarf með námi, þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi.
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Þátttaka í teymisvinnu
- Hjúkrunarnemi á þriðja eða fjórða námsári
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarnemi, hjúkrun,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5