Sérfræðilæknir í lýtaskurðlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í lýtaskurðlækningum. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1.janúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Metnaðarfullt teymi lækna starfar við lýtaskurðlækningar á Landspítala og sinnir fjölbreyttum verkefnum í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir.
Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd sjúklinga okkar.
- Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni, m.a. þátttaka í samráðskvaðningum og göngudeildarþjónustu þar sem öllum spítalasjúklingum skal sinnt
- Þátttaka í vöktum sérgreinarinnar skilyrði
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni
- Þátttaka í teymisvinnu
- Færni og virkni í brunameðferð
- Færni og virkni í smásjáraðgerðum (microsurgery)
- Faglegur metnaður og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Virkni í kennslu og vísindavinnu
- Sérfræðileyfi í lýtaskurðlækningum
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, læknir, sérfræðilæknir